MS // Mjólk

Agency: ENNEMM
Production: Sagafilm
Director: Guðjón Jónsson

Best með mjólk

Það eru alltaf ákveðin tímamót þegar ástkæra mjólkin endurnýjar útlitið á umbúðunum. Hönnunin kemur úr smiðju ENNEMM og til að kynna hana var ákveðið að gera kvikmyndaða auglýsingu þar sem rifjað er upp það helsta sem okkur finnst allra best með mjólkinni. Guðjón Jónsson leikstýrði auglýsingunni sem var framleidd af Sagafilm og skartar stórbrotinni tónlist eftir Úlf Eldjárn. Um leið var blásið til skemmtilegs leiks á Facebook þar sem notendur geta mælt mjólkurástina sína.

af ENNEMM.is

Mjólk er góð með ýmsu

Helsta áskorunin í þessu verkefni er samkeppnin á drykkjarvörumarkaði en þar mæta sífellt fleiri keppendur til leiks. Því var brugðið á það ráð að draga upp guðdómlega mynd af girnilegu samspili mjólkur og alls konar hnossgætis sem minnir á sérstöðu mjólkurinnar og tengist um leið útlitinu á nýju umbúðunum.

af ENNEMM.is

Guðjón Jónsson // S: +354 695 5960 // E:gudjon@gudjon.net